Þá er maður búin að fá úr öllum prófunum...byrjaði vikuna á að fá
8 í lífsleikni, íþróttir og Frönsku,
4 í skólasókn (:-S) og vara bara nokkuð sátt við það...ég meina þrjár áttur!!! svo fór ég í fleiri próf of fékk úr félagsfræði, sem flestir vita að ég féll í í fyrra og var þannig að taka þetta í annað sinn, og fékk þá
7!!! :D (takk æðislega fyrir hjálpina Auður!!!!) og svo fékk ég
3 í íslensku :-( sem eins og þið vitið þýðir að ég er fallin í því :-S og svo fékk ég
5 í Sögu sem ég er mjög sátt við....en þá sjáið þið það ég náði öllu nema íslensku sem fyrir mig er bara nokkuð gott :-) en þá er ég búin að vera að læra á fullu í dag, bara komin með tvær manneskjur að hjálpa mér! og á eftir að vera í allan dag að læra á morgun....ég ætla mér sko að ná þessu blessaða prófi...síðan er planið að fara suður á þriðjudags morgun og svo heim til Englands á miðvikudags morgun...get ekki beðið!!! ég hef það á tilfinningunni að þetta verður gott sumar! þótt ég og allar vinkonur mínar eru á sitt hvorum staðnum...

Nei sjáiði! þetta er ég að læra! (nema ég er stelpa!)
en ætla fara núna...við heyrumst!
Kv. litli tossinn
PS wish me luck!!!!
1 comment:
til hamingju með prófin...ég er stolt f þér;)
Post a Comment