Sunday, December 24, 2006

Gleðileg Jól allir!!! :D:D:D:D


Sjáumst í nýja árinu!!!
Loveyaloveyaloveya longtime!
Salka
xXxXx

Friday, December 15, 2006

ég vildi að það væri fleiri tímar í deginum það er einfaldlega ekki nóg tími tils að gera allt sem maður þarf að gera!!!!

eins og núna þarf ég að gera svo margt áður en klukkan verður níu og það er einfaldlega ekki nóg tími!!!:S

svo svaf ég bara í tvo tíma í nótt og fór síðan í skóla sund í morgun og það er ekki gaman :S

en þetta er ömurlegt blogg ég held að ég ætti bara hætta þessu...

bæjó

Sunday, December 10, 2006

ég er búin að finna ökuskírteininu mínu! og debit kortið mitt! oog skilríkin mín!!!! :D:D:D:D
og svo er ég líka komin með nýjan síma!!! :D:D woo hoo!!! pabbi kom nefnilega til landsins á miðvikudaginn og keyypti handa mér nýjan í fríhöfninni bara svona ódýran tils að vera með þangað til ég fæ nýjan.... ;D


er hann ekki fínn?!? nokia 6070 :D hægt að hlusta á útvarpið í honum og allt....

gær kvöldið var mjöög skemmtilegt! og believe it or not þá var ég edrú...ég ætla ekkert nánar út í málin en Unnur owes me BIG time...nei hún owes me HUGE time!!!! og Bryndís líka því hún var varla skárri en Unnur....lets just say nýjasta tískan hjá mér tils að vera í á Capone er rauðu stígvélin mín, bleiku náttbuxurnar mínar með ísbjörnum á og græn skíðaúlpa af Orra....

Svona voru allir þegar þau sáu mig:

Síðan er komið nýtt Lag stundarinnar; All I want for christmas is you...þetta lag er í uppáhaldi hjá okkur í vinnunni á stundinni...syngjum allar alveg ótrúlega vel með... ;D

Sunday, December 03, 2006

margt gerðist í gær smá brot:
  • ég eyðilagði símann minn
  • ég týndi jakkanum mínum
  • ég týndi ökuskírteininu mínu
  • ég týndi debit kortið mitt

en þessar staðreyndir eru klárlega aukaatriði því kórónan mín er ennþá heil og fín! :)

plúsplússamasem



Friday, December 01, 2006

Þann 29. September 2006 fæddist lítil prinsessa;

Til hamingju Helga Margrét og Biggi með litla dúlluna ykkar! :D
er með smá gjöf handa þeim en er ekki viss hvort Helga Lind hefur munið eftir því að láta þau fá hana....en það er komið á hreinu, ég verð fyrir vestan um jólin þannig að ég bíð spennt eftir því að sjá þessa skvísu in person!

Monday, November 27, 2006



Barnið hennar Hrefnu litlu systir, chou chou....

Thursday, November 23, 2006

Hulda var að hvarta yfir allar sannarnirnar sem hún þarf að læra og hversu tilgangslausar þær eru þegar Siggi sagði að þegar hún var í prófi þá ætti hún bara sanna þessa reglu:

Girls = Evil

Sönnunin :

Girls = Time X Money
Time = Money
Girls = Money X Money
Girls = Money²
Money = √Evil
Girls = Money² = √Evil²
Girls = Evil

Fannst þetta soldið fyndið, þótt þetta er alls ekki satt! Hrmpf!

Wednesday, November 22, 2006

Það er official, ég er að leggjast í dvala...mér finnst ég ekki hafa gert neitt nema sofa seinustu dagana...á mánudaginn svaf ég til eitt og svo gerði ég það aftur á þriðjudaginn, síðan í dag svaf ég smá í hádeginu, svaf í náttúrufræði, kom heim klukkan hálf 4 og ætlaði að leggja mig í hálf tíma, vaknaði síðan klukkan tíu mínutur í 7! átti eftir að borða, skipta um föt, sækja Kristínu og keyra niður í vinnuna!!! úff....var líka öll krumpuð og fín þegar ég vaknaði....veit ekki hvað fyrsta fólkið sem kom í bíó hefur haldið þegar þau sáu mig :-P en ég ætla að fara og sofa meira! Góða nótt

Sunday, November 19, 2006

Í gær var ég farin að halda að ég væri orðin fastagestur á slysadeildinni upp á spítalanum hérna á Akureyri....á miðvikudaginn kom Orri heim af fótbolta æfingu og hann tilkynnti að ég þyrfti að fara með hann upp á slysó því hann meiddi sig í fótnum...og ég alltaf jafn góð við bróðir minn hlustaði ekkert á þetta hjá honum og sagði honum að leggjast í sófan setja eitthvað frosið á það...fór út í Brynju og keypti ís handa mér og krökkunum en þegar ég kom heim þá var Orri að kvarta að honum var enn þá rosalega illt, þ.a. þegar við vorum búin með ísana okkar þá fór ég með hann upp á slysó. þar var mikið vesen því hann er ekki búin að vera á Íslandi í 6 mánuði þ.a. hann er ekki komin inn í kerfið og erþá ekki með tryggingu eða eitthvað og er talin sem útlendingur og þurftum við þá að hringja í mömmu og pabba og láta faxa E111 kortið hans og koma með vegabréf en af því að það var um miðnættis og hjúkkan vildi leyfa okkur inn þá sagði hún að við mættum redda þessu öllu daginn eftir...við hittum læknirinn og hún leit út fyrir að vera 12 ára eða yngri! svo sagði hún ekki mikið fyrir utan "ég held þetta er ekki brotið en þú mátt koma aftur á morgun ef þér er mjög illt..." og þá fórum við heim...síðan fórum við aftur á slysó daginn eftir svo hann gæti farið í myndatöku og þá kom í ljós að hann var ekki brotin en hann var búin að togna í öklanum og fékk ækjur og tegjusokk...síðan á föstudaginn lenti vinur Óðins í einhverjum slagsmálium og var skallaður og nefbrotin og hann vildi fara og check-a á hann þ.a. við fórum upp á slysó (ég var driver) og þar var bróðir stráksins sem var nef brotin og einhverjir aðrir vinir hans allt í lagi með það og strákurinn kom fram allur út í blóði og með sauma á nefinu og settist hliðin á mér...ég leit á hann og hugsaði bara ugh...þetta var ekki fallegasta sjón sem ég hef séð...en þá var ég búin að fara upp á slysó þrjá daga í röð og ég bara beið eftir því að eitthvað myndi gerast í gær sem myndi þýða að ég þyrfti fara upp á slysó aftur... ég er eiginlega bara glöð að ég hitti ekki alltaf sömu hjúkkuna...hún myndi örugglega fara að halda að ég væri að slasa fólk viljandi bara svo ég gæti ffarið upp á slysó og sitja og bíða eftir að fá að hitta einhver....því það er svo gaman! :P var líka að fatta að fyrir svona máuð síðan (eða lengra) þá var Unnur upp á spítala og ég var þar á hverjum degi í viku eða svo...á ég ætti bara fá mitt eigið herbergi þarna!

svo í gær var farið á 1929/capone það var einhverjir fimm DJ-ar sem komu og svo voru þeir líka með einhver skemmti atriði...þeir krosfestu einhver gaur!!!! :O veit ekki alveg hver þetta var og ég horfði ekki á en þetta var allt tekið upp þ.a. þið getið örugglega fengið að sjá þetta einhversstaðar einhvern tíman...en þetta var samt geðveikt kvöld...hitti allar stelpurnar og dansaði af mér fæturnar! og ég læri af mistökum mínum fór í Dr. Mister & Mr Handsome bolnum en ég fór í hlýrabol undir og gallapilsið mitt! :D var mjög stolt af sjálfum mér fyrir að flasha ekki nein og allt það :Þ en núna sit ég í sófanum að horfa á 3 men and a little lady og nenni ekki að hreyfa mig en samt finn ég að það er geðveik djamm lykt af mér og að ég þarf að fara í sturtu, ég bara nenni ekki að hreyfa mig...ég er ein mesti "sófa kartafla" sem ég veit um...hehe :Þ

en ég ætla að reyna að mana sjálfa mig upp í að fara í sturtu...bæjó!

Thursday, November 16, 2006

Helgin já....best að blogga um hana svona af því ég var búin að lofa....samt er soldi langt síðan eeen... :Þ
Fimmtudagskvöld
ég var að vinna þ.a. þegar ég var búin aðeins eftir 11 fór ég heim skipti um föt og solleis og kíkti niður á Capone...þar hitti ég fullt af fólki, Ernu, Silju, Láru, Sigrúnu, Júlíu, Heiðu, Erlu...einhverjir sem ég gleymdi? og það var bara rosalega gaman....góð byrjun á helgina :D
Föstudagskvöld
aftur var ég að vinna og var búin aðeins eftir 11 fór heim, skipti um föt, málaði mig og var komin heim til Silju aðeins eftir 12...var mjög stolt af því hversu fljót ég var :D heima hjá Silju var Erna með smá get together fyrir afmælið sitt og suðvita var það geggjað gaman...þótt ég náði bara seinustu hálftímanum/fjörtíu mínuturnar...síðan fórum við niður í bæ og fórum á Capone...þar var dansað og drukkð og gamn :D eða það er hvað mér er sagt! :Þ þaðan fór ég á Dátan með honum Óðinn og þar hitti ég Röggu, systir hennar Sunnu, samtalið okkar fór víst svona; Ragga sagði eitthvða um hvað ég var í stuttu pilsi eða í lítið af fötum og ég svaraði "það er allt í lagi, ég bjó í Englandi" hehe mér finnst það soldi sniðugt hjá mér :D síðan fórum við aftur heim til Silju og gistum þar :D og það var föstudagurinn minn ;D
Laugardagskvöldið
ég var aftur að vinna og gerði bara það sama og ég gerði á föstudaginn...Erna og Silja sóttu mig og fóru með mig að sækja Unni og fór með okkur niður í bæ þar sem við fórum í Sjallan á Skítamórall sem var að sjálf sögðu mjöög gaman :D við dönsuðum mikið og alles:D samt voru allir eitthvað að parast saman þetta kvöld þ.a. það endaði þannig að ég var komin niður og var bara að spjalla við fólk :) sem var líka gaman síðan (eins og venjulega) fórum við í nætursöluna og fengum okkur eitthvað í goggin....síðan var okkur skutlað heim og við fórum að sofa... :D

en ég held að þetta var allt þ.a. núna sjáið þið hvað þetta var góð helgi hjá mér :D en ég hef ekkert meira að segja þ.a. við heyrumst bara! :D

Monday, November 13, 2006

Vá þetta var geðveik helgi!

vildi bara láta ykkur vita...nenni ekki að skrifa um það núna...geri það örugglega seinna...en ég lofa engu...You know me! :P

Saturday, November 04, 2006

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Ernaaaaa, hún á afmæli í daaaaaag! :D

Til hamingju með afmælið krúttið mitt! því miður er ég ekki með mynd af þér í þessari tölvu (heima hjá ömmu og afa) en ég skal skella eini inn þegar ég kem til Akureyrar! :D

s.s. fyrir þá sem ekki voru búin að fatta það þá á hún Erna Valborg Björgvinsdóttir átján ára afmæli í dag!!! en ég vildi bara segja til hamingju með daginn! :D

en ég verð að fara núna...þarf að éta...bæjó!

Wednesday, November 01, 2006

Verð að segja ykkur smá sögu....

á sunnudaginn þá voru ég og Erna að rúnta og þá hittum við Silju og Kristján og fórum eitthvað að spjalla...síðan ákvöðum við að fara í nýja smakaup, og þegar ég steig út úr bílnum fattaði ég hversu þreytt ég var í fótunum...var nefnilega búin að vera að vinna í allan dag og var dauð þreytt þ.a. ég spurði hvort það var einhver sem vildi halda á mér og Kristján bauðst til þess að taka mig á hestbak og utvita játaði ég það og fékk hestbak inn í samkaup...þegar við komum inn stoppaði Kristján ætlaði bara láta mig detta niður eins og maður gerir þegar maður er á hestbaki...nema það að það var rignig úti þ.a. skórnir mínir voru blautir og ég flaug á bakið og Kristján missir jafnvægið og dettur ofan á mig!!! fyrst hló ég geðveikt mikið....þetta var líka rosalega fyndið...þangað til ég fattaði hversu illt mér var í rassinum...ég sver það ég er marinn eða eitthvað...þetta er enn soldi vont :/

vildi annars bara deila þessu með ykkur :D líka það að ég er að fara vestur á morgun! :D yay ég get ekki beðið!!! það er löng heldi í MA og svo er skrall á ísafirði og Jeff Who? verður!!! :D:D:D:D woo hoo! það verður geðveikt....

og má ég bara segja að það er viðbjóðslega kalt úti!!! ég er að deyja...ég held að ég verð að flytja aftur til Englands ég þoli þetta ekki lengur...þá var ég líka að kaupa fött í dag; fékk 2 kjóla, 1 par skó, 1 veski, 1 buddu og belti á Kr. 1500!!!! :D er geðveikt spennt yfir þessu!

en ég verð að fara núna...blogga meira kannski um helgina...annars blogga ég bara eftir helgi :D heyrumst!

Tuesday, October 17, 2006

Faðir minn er í Mafíunni...

Eða það er hvað hann bróðir minn trúir...hann segir að hann faðir minn er í mafíunni því hann getur reddað öllu, þú ert í einhverju veseni, hann reddar því...hann þekkir alla...hann hefur oft farið í flug þar sem hann mæti ca. 20 mín fyrir flugið án þess að vera með miða eða passa og fólkið var bara kurteis við hann og alles...

en annars er geðveikt langt síðan ég bloggaði seinast...bara þegar ég var á spáni! sem er náttúrulega ekki nóg og gott... en ég er að blogga núna og ætla að reyna að vera duglega núna eftir þetta...en ég lofa engu...það er svo margt sem ég hef óbloggað ég hef bara ákvað að sleppa því og byrja eins og þetta sé bara glæný síða þ.a. é ætla bara ða hætta núna og við heyrumst seinna...vildi bara segja ykkur þessar skemmtilegar fréttir um faðir minn...

Kv.Salka

Friday, August 25, 2006

bara eitt fljótt frá spáni! :D

  • tad er mjooog heitt
  • tad er ekki haegt ad sjá stafina á tessu lyklabordi
  • er ad fara á sangría djamm í kvold...kannski ein! :O (engin í bekknum er ad fara nema kannski ein stelpa...vid verdum bara ad sjá...)
  • ég er yngst í bekknum mínum....
  • ég er ad gista hjá hjónum sem eru 60 ára og dóttir teirra býr hjá teim sem er 27...heppilega tví hún talar ensku en ekki hjónin....
  • komst ad tví ad ég er verri í spaensku en ég hélt... :-P
  • fer til barcelona naesta laugardag eftir viku...verd til midvikudaginn....vill einhver hitta mig tar eda á ég ad fara ein á djammid tar?
  • tad stara allir á mig tegar ég labba nidur gotuna ástaedurnar fyrir tad eru orugglega ad ég er snjaka hvít, ljós haerd og er oftast bara ein....

en í gaer kyntist ég tvo argeníska (?) lífverdi....ég var bara ad labba nidur gotuna ad borda ísinn minn tegar einn teirra sagdi eitthvad vid mig á spaenksu...ég bara "No hablo español" tá sagdi hann eitthvad á ensku og ég spurdi hann hvort hann hélt virkilega ad ég vaeri spaensk...hvort ég liti út fyrir ad vera spaensk...ég meina er ég dokk haerd? nei. er ég brún? langt frá tví!lít ég út fyrir ad vera týnd? já....tarna sjáidi tid hvad ég stend út "like a sore thumb" hérna! :-P

en ég er kominn med spaenskt númer ef einhver vill eyda inneign og senda mér sms :) 0034 627 899 739 er tad ekki fallegt? :D

aetla ad fara...er ordin soldi svong....

¡Adios!

Tuesday, August 15, 2006

(x) reykt sígarettu
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
( ) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) verið rekin/n
( ) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) drukkið þig það fulla/n að þú deyrð
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
(x) rifist við góðan vin
( ) kveikt í þér viljandi
(x) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) lent í bílslysi
(x) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(x) grátið svo mikið að þér fanst þú aldrei ætla að hætta
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
( ) efast um að hjartað segði þér rétt til
(x) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
( ) stungið tungunni uppí nefið
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( )verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
(x) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti
(x) drukkið áfengi

Wednesday, August 09, 2006

er að skrifa email til ykkur öll...hver vill fá? kommentið!

Monday, August 07, 2006

hæ! :D

ég er komin aftur frá Newquay og það var geðveikt!!!!! ég ætla að fara með ykkur öll þangað þetta er besti staður í heimi!!!! og það sem gerðist þar...úúú slúður, slúður, slúður!!!!

en ég er í vinnunni þ.a. ég segji ykkur seinna....

Blesss
xxxx

PS nr-ið mitt; 0044 7766687812

Friday, July 28, 2006

Vá hvað það er langt síðan maður hefur bloggað! Það er líka búið að vera fullt að gera hjá mér hérna í Engalandinu....ég er bara í vinnunni alla virka daga 8 – 5 (ef ekki seinna) og svo má ekki missa helgi af djamm þ.a. ég hef verið duglega að fara í bæinn...fór reyndar í gær, en meira um það seinna...

Eins og flest ykkar vita þá er ég að fara til Newquay með vinkonum mínum og við erum búnar að vera að plana þessa ferð í næstum því ár og ég er alveg að deyja úr spennu og ég held að þessi vinnu dagur hefur verið sá erfiðasti vegna þreytu og spennu því ég fer á MORGUN!!!!! :D:D:D ég get ekki beðið...svo er líka Rip Curl Surf Week þegar við erum sem þýðir að það verður fullt af surfer gaurum og soleis!!! ;D ég er að deyja!!!!

En, þegar ég var að klára prófin mín sagði pabbi að ég gæti kanski fengið að fara til spánar í viku eða eitthvað á spænsku kúrs tils að læra spænsku því það gengur ekki mjög vel hjá mér í fjarnáminu... en ég hélt að þetta var bara eitthvað sem hann segir og svo gerist það aldrei, (eins og að hann ætlaði að kaupa handa mér bíl...í fyrra! En hann reyndar á íslandi núna að reyna að finna flottan jeppling...) en þá var honum alvara og ég er á leiðinni til spánar í tvær og hálfar vikur í enda ágúst!!! :D:D:D ég var mjög lengi að ákveða mig...enda er þetta erfið ákvörðun en svo að lokum valdi ég að fara til San Sebastian sem er í norður Spáni...næstum því í frakklandi!!! Ég verð þar í tvær vikur síðan fer ég til Barcelona og gisti hjá Kötu frænku minni í þrjár nætur... en hérna eru myndir ;





Síðan í dag á ein góð vinkona mín Leanne afmæli og í gær var farið út á lífið til þess að halda upp á því, við byrjuðum á því að hittast á bar sem heitir Revolution og fengið sér nokkra drykki (samt ekki ég því ég var edrú) og dansað smá, síðan var farið á annan bar sem heitir Sharkie’s og fengið sér drykk (samt ekki ég því ég var ennþá edrú) og síðan farið á annan bar sem heitir Biarritz og fengið sér nokkra drykki (ég ennþá edrú, mjög stolt) og dansað soldið...síðan var farið til Postion þar sem við myndum vera restina af kvöldinu...fórum þangað inn og það var dansað og drukkið og talað og borðað og bara alles! Það var geggjað gaman...og hvern skildi ég hitta annan en hann Matt Johnog við fórum að spjalla aftur og ég komst að því að samband okkar er svona love/hate samband...bara meira hate því við eyddum mest af kvöldinu að gera grín af hvor öðrum og bara vera “down right mean”...en gaman! :-P en við náðum að sættast þ.a. það er allt í lagi....ég náði honum meira að segja niður á dansgólfið en hann dansaði ekki...ég næ því næst! En svo var ég ekki kominn heim fyrr en klukkan 3 og fór ekki strax að sofa því einhverjum fannst sniðugt að fara senda mér sms og ég sofnaði síðan um fjögur hálfa leiðina í gegnum að skrifa svar og vaknaði í morgun og fann síman lyggjandi opin hliðin á mér á koddanum! :-P vaknaði klukkan átta í morgun fór í sturtu og fór síðan í vinnuna og er núna að deyja úr þreytu! En svo er Leanne að halda stóra veislu heima hjá sér í kvöld og ég á víst að mæta en ég er enn þá ekki byrjuð að pakka og ég fer að heima um 11 í fyrramálinu!!!! Ég veit ekki hvernær ég á að gera þetta :-S

en verð að fara og vinna! heyrumst

Monday, July 03, 2006

Þá er maður bara orðin átján ára!!!! :D á afmælisdeginum, sem var, by the way, á laugardaginn 1. Júlí!, fór ég heim til hennar Rögnu frænku minnar sem býr hér í Hedon rétt fyrir utan Hull og hún grillaði handa mér og Hrefnu mjög góðan mat, sem því miður ég borðaði lítið af vegna asnalega litla maganum mínum!!!! Grrr! en já síðan fór ég á dress rehersal fyrir dans syninguna sem vinkona mín er að setja upp og var að hjálpa til þar...þegar ég kom heim komu vinkonurnar mínar og við borðuðum smá giant cookie og ávexti og sykurpúða dýfð ofan í súkkulaði, nammi namm! þá fórum við út og máluðum bæinn rauðan! :D við byrjuðum á bar sem heitir Sharkies síðan fórum við í club sem heitir Pozition og það sem gerðist aðallega var;

  • ég datt ekki!
  • kenndi hálf dönskum strák að tala dönsku
  • kynntist fullt af nýju fólki, og einum kynntist ég mjöög vel
  • kenndi 2 barþjónum að búa til drykk
  • varð vinkona hans Martins, dyraverðinum, sem sagðist hafa vera skotinn! :O
  • tvær mismunandi næstum ókunnugar manneskjur fundu/snertu undir hendúrnar mínar!

var örugglega fullt meira sem gerðist en get ekki hugsað hvað akkurat núna, ég þarf hvort sem er að fara aftur að vinna, er nefnilega í vinnunni og á að vera að vinna ekki blogga! þannig að við heyrumst!

Monday, June 12, 2006

jæja...þá er maður búin með upptöku prófið og fékk hún ekki bara 6!!! :D er mjög stolt! vill bara þakka Aus og Unni fyrir að hjálpa mér með þetta....nú er ég alveg að rembast við að taka til, ryksuga, skúra, vaska upp, þvo föt, pakka niður,blah de blah de blah....og svo er ég alveg hrikalega svöng en það er ekki til neinn matur á þessu blessaða heimili og það er svo vont veður úti að mig langar eiginlega ekki að labba út í búð... :S æ lífið er svo erfitt!!!

en svo er maður að fara suður í fyrramálinu og síðan til Englands á miðvikudags morgun...eða ég vill segja nótt því flugið fer kl 7 sem þýðir að ég þarf að vera mætt út á völl kl 5 sem þýðir að ég þarf að leggja af stað kl 4!!!!!! hvað á þetta að þýða?!?

en var að fatta að ég á smá cup-a-soup...fæ mér þannig bara...heyrumst!

Kv. Salka Snillingur í íslensku!

Saturday, June 10, 2006

Þá er maður búin að fá úr öllum prófunum...byrjaði vikuna á að fá 8 í lífsleikni, íþróttir og Frönsku, 4 í skólasókn (:-S) og vara bara nokkuð sátt við það...ég meina þrjár áttur!!! svo fór ég í fleiri próf of fékk úr félagsfræði, sem flestir vita að ég féll í í fyrra og var þannig að taka þetta í annað sinn, og fékk þá 7!!! :D (takk æðislega fyrir hjálpina Auður!!!!) og svo fékk ég 3 í íslensku :-( sem eins og þið vitið þýðir að ég er fallin í því :-S og svo fékk ég 5 í Sögu sem ég er mjög sátt við....en þá sjáið þið það ég náði öllu nema íslensku sem fyrir mig er bara nokkuð gott :-) en þá er ég búin að vera að læra á fullu í dag, bara komin með tvær manneskjur að hjálpa mér! og á eftir að vera í allan dag að læra á morgun....ég ætla mér sko að ná þessu blessaða prófi...síðan er planið að fara suður á þriðjudags morgun og svo heim til Englands á miðvikudags morgun...get ekki beðið!!! ég hef það á tilfinningunni að þetta verður gott sumar! þótt ég og allar vinkonur mínar eru á sitt hvorum staðnum...



Nei sjáiði! þetta er ég að læra! (nema ég er stelpa!)

en ætla fara núna...við heyrumst!
Kv. litli tossinn

PS wish me luck!!!!

Monday, June 05, 2006

so...maður hefur verið að læra og læra og læra núna í tvær vikur og hversu duglegur maður er fer minnkandi á hverjum degi...sérstaklega eftir að mamma fór á föstudaginn :-Þ...ég er alveg að fara yfir um! ég hef verið ein heima í alltof langan tíma! ég þarf að geta talað við fólk! arrrrg!

en já...það er langt síðan ég hef bloggað en ég hef ekkert gaman að segja :-S þegar maður er í prófum þá er lífið svo leiðinlegt :-S en ég fer heim eftir nokkra daga og ég get ekki beðið!!! :D byrja að vinna sem PA á mánudaginn...(reyndar PA-ið hans pabba en samt :-P) og svp er year 13 prom-ið 30. Júní! er mjög spennt! :D fæ að hitta fólk sem ég hef ekki séð í tvö ár! það verður geðveikt! svo á ég afmæli daginn eftir! 1. Júlí ! ég verð átján ára!!! þið verðið öll að kaupa handa mér gjöf! ;-) síðan liggur leiðin til Newquay í enda júlí...í viku! :D ég og Claire ætlað vonandi að fara til London í ein dag áður og fara í verslunar leiðangur :D og ef hægt er á ætla ég að hitta Villa, og kannski bróðir hann, og "do lunch" á meðan við erum í London...þetta verður geðveikt sumar vonandi....

en ég ætla að fara ða sofa...

Góðan nótt!
Salka

Saturday, May 27, 2006

Náði stelpan ekki spænskunni! :D kanski ekki með besta einkun heims en samt ég náði! :D er mjög glöð, hafi smá áhyggjur af þessu en núna er þetta allt í lagi...og svo var maður í frönksu í gær morgun...gekk bara nokkuð vel...betur en ég hélt! :D nú á bara eftir að hafa áhyggjur um sögu, íslensku, félagsfræði, ensku og lífsleikni...samt hef ég ekki áhyggjur af enskunni minni þ.a. þetta verður allt í lagi :D

en nún er maður að reyna að lesa þessa lífsleikni bók, eða eins og ég kýs að kalla það lífsleikni bæklinginn, en þá er kallin uppi að hamra og saga, með vélsög, og ég veit ekki hvað og hvað með fullt af læti og maður getur einfaldlega ekki einbeit sig! og hann veit að það heyrist mjöööög mikið á milli...sérstaklega niður til okkar og hann getur ekki komið og sagt mér að hann ætlar að gera þetta svo ég veit hann verður með læti neeei það er ekki hægt...grrrr er smá bitur....

en núna koma mamma og Orri seinna í dag og maður ætti kanski fara að ganga frá inni í eldhúsi, en ég bara nenni því ekki...en mamma er búin að taka bílaleigu bíl þ.a. maður getur kanski fengið að rúnta smá í kvöld :) og eins og þið flest vitið þá týndi ég kreditkortinu mínu og ég er ekki með neinn pening og hef verið að lifa á engu síðan á miðvikudaginn svo það verður gott að fá mömmu til þess að fara að versla inn mat á heimilið... :D

Kv. Salsa-gustaf

Tuesday, May 23, 2006

Kristjana farin :(, snjórinn og prófin komin í staðinn....

jæja þá er hún elsku Kristjana mín flutt suður fyrir sumarið...vá hvað maður á eftir að sakna hennar! en ég ætla mér að hitta hana á leiðinni minni heim..ætlum að hittast og djamma :D eða bara hittast og versla skó! :D en hún fór fljúgandi héðan í gær og var að fara með fluginu kl 12:10 og síðan að við (ég og Sunna) förum í mat klukkan 12:10 ákvöðum við að fara úr tímanum smá snemma fara út á flugvell og surprise-a hana Kristjönu...við flýtum okkur út á flugvell hlaupum inn...en við finnum hana hvergi...síðan skemmum við surprise-ið og hringjum í hana til þess að sjá hvar hún er en þá kemur í ljós að kjánaprikið var sofandi! við vöktum hana kl 12 og flugið hennar fór eftir tíu mínutur...en hún missti af fluginu og við pöntuðum handa henni far með næsta flugi sem fór reyndar ekki fyrr en kl 15:10 en það er betra en ekki neitt:-P en hún komst þó loksins til RVK og það er bara allt í fínasta lagi! :D

það byrjaði að snjóa svona "on and off" um helgina...aldrei neitt sem festist en það snjóaði samt en í gær nótt (sunnudags nótt) byrjaði snjórinn að festast og það snjóaði í alla nótt og er ENN að snjóa! það er allt á kafi í snjó! ég vill ekki snjó! ég vill sól! og það var komið svo gott vepur...er bara búin að vera að ganga í sumar fötum síðan eftir páskana og núna kemur snjór!!!! grrr!!! ég er mjög bitur! og "to top it all off" þá byrja prófin á föstudaginn...:-S wish me luck! I'm definatly going to need it!

en annars segji ég bara allt gott...er búin að vera að sýna og seinasta sýningin var á sunnudaginn og það kom gagngrýnandi og alles! (það er ástæðan fyrir því ég hef bloggað svona lítið) og svo er síðasti kennslu dagur á morgun en við fáum frí í einu tímanum sem við eigum að fara í þ.a. þetta er bara síðasti kennslu dagurinn minn! :D

bæjó!
Salka

Sunday, May 14, 2006

1. Hver ert þú?
2. Hver er ég?
3. Hvar hittumst við fyrst og hvernig?
4. Hvernig leist þér á mig þá?
5. Hvernig lýst þér á mig núna?
6. Lýstu mér í einu orði:
7. Gefðu mér gælunafn, og segðu mér afhverju þú valdir það:
8. Hvað minnir þig á mig?
9. Hversu vel þekkir þú mig?
10. Hvar og hvenær sástu mig síðast?
11. Hvaða stjörnumerki er ég, eða hvenær á ég afmæli?
12. Hvað meikar bara sens fyrir mig og þig?
14. Hvað er uppáhaldssjónvarpsþátturinn minn?
15. En bíómynd?
16. Á ég systkin? Ef svo er, nafngreindu þau:
17. Á ég kærasta? Ef svo er, hver er það?
18. Trúi ég á Guð?
19. Hvernig myndir þú lýsa mér fyrir öðrum?
20. Tókstu eftir því að það vantar nr. 13?
21. Ætlaru að láta þetta á þitt blogg svo ég geti skrifað um þig?

Saturday, May 13, 2006

Gær kvöldið....var geðveikt gaman!!! :D

Planið var að fara í kjarna (það er skógur hér á Ak) á félagsfræðiárshátíðina en við (ég, Unnur, Erna og Sunna) fréttum að það væri engin þar þ.a. við fórum og kíktum og það voru bara nokkrir 10. bekkingar og bróðir hennar Sunnu! :-P svo við hættum við...fórum heim til mín og skiptum um föt og gerðum okkur til...síðan komu Sigrún, Heiða og Katrín og þær kláruðu að gera sig fínar og borðuðu sítrónur í sykri ;-P síðan lögðum við af stað niður í bæ :D fórum fyrst á Oddvitann en það var ekkert stuð þar þ.a. við fórum á Kaffi Ak þar var FULLT af fólki og dönsuðum og skemmtum okkur mikið...en þá byrjuðu creepy gömlu karlarnir að creepa okkur út! þ.a. við fórum á Dátann, en þá voru Sunna og Unnur búin að skipa okkur að koma þangað... :-P þar var líka gaman hittum fullt af fólki, Boggu, Kötlu og Nínu....síðan fór DJ í taugarnar á okkur þannig að við fórum aftur á Kaffi Ak! :D þar hittum við Sindra gamla böðulinn okkar! :D við tókum fullt af myndum og ætla ég að setja þær á netið núna á eftir! :D

eftir að það var búið að loka fórum við Erna, Sunna og Kristjana á Nætursöluna og ætluðum að fá okkur franskar...Kristjana var svo góð að hún pantaði og borgaði franskar fyrir okkur allar, síðan byrjaði biðin, hún beið og beið og beið, á meðan sátum við út í glugga að borða franskarnar!!! :-P síðan fór hún að tala við einhvað fólk síðan fór hún aftur að afgreiðslu borðinu og beið meir...á meðan héldum við áfram að éta!!! :D þá föttuðum við Erna og Sunna að við værum að éta franskarnar sem Kristjana var að bíða eftir...þ.a. Sunnu kallaði á Kristjönu "hvað ertu að bíða eftir?", "frönskunum sem ég keypti handa okkur öllum!", "Kristjana komdu aðeins...(Kristjana kom, við réttum henni pokana) þú mátt eiga restina..." hehehehehe :Þ okkur fannst þetta allavega mjög fyndið! :Þ

Erna, Sunna og ég í nætursölunni, ég og Erna að gera okkar best að eyðileggja myndina!!!!
Erna svöl að borða franskana! :D


núna ætla ég að fara....takk allir fyrir gærkvöldið og við sjáumst seinna!!! :D
Salka

Monday, May 08, 2006

hæhæ! :D
og hvað segja allir gott í dag? sit hér í tölvustofunni og á að "afla upplysinga" um gildi! já, nei takk! þannig að ég ákvað að segja ykkur frá laugardagskveldinu! :D

Kristjana átti afmæli á föstudaginn og Sunna átti afmæli í gær og þær héldu smá teiti á laugardaginn áður en var farið í Sjallan að hitta vin okkar Pall Óskar....ég og margrét lögðum af stað af vistinni kl 8:30 heim til Auðar svo ég gæti greitt henni og löbbuðum í öllu fíneríinu okkar meðan allt fólkið starði á okkur :-P síðan komu Vala og Steinar til Auðar og við ákvöðum að klippa toppinn hans Steina :D núna þarf bara að klippa restina af hárinu :-P síðan löbbuðum við öll heim til Kristjönu og þá byrjaði partíið...sungum smá Baywatch og fengum okkur svala ;-) síðan eftir það var farið niður í bæ og í Sjallan...þar hitti ég fullt af skemmtilegu fólki; fyrst bróðir hans Villa (skamm skamm hann er ekki orðin 18! hvað þá 17!) síðan Nínu sem ég hef ekki séð í ár eða eitthvað, og svo Ómar sem ég hef ekki séð í mjög langan tíma líka (btw, takk fyrir dansana og pick upin af gólfinu) og líka fullt af öðru fólki...mann ekki alveg alla :-P síðan var bara farið heim þegar það var komið bjart (mjög skrítið...)

gær dagurinn var eyddur í sundi og að grilla kjúlla...og að liggja og hvíla fæturnar eins mikið og hægt er....fæturnar eru í rústi eftir laugardaginn!!! :-S

en verð að fara að kaupa mér mat!
Kv. litla brauðfætur

Tuesday, May 02, 2006

Já vill bara láta alla þá sem hafa verið að móðgast yfir þessu seinustu tveim bloogum hjá mér að þetta er bara grín...þetta er ömurlegi húmorinn í henni Sunna að verkum hér fyrir neðan....og bara til þess að hafa það á hreinu þá er ég EKKI samkynhneigð (eða as far as I know:-P)

síðan var ég í spænsku munnlega prófinu mínu í dag :-S það gekk bara svona sæmilega var búin að undirbúa efni (5-6 setningar) fyrir öll 4 atriði sem komu til greina...og bjó til smá auka fyrir 3 þeirra...síðan í prófinu (í gegnum síman já þakka þér fyrir!) dró kennarinn minn eitt atriði og kom ekki það atriði sem ég hafði undir búið mest fyrir!og var búin að skrifa svör við tveim mögulegum spurningum sem hún myndi spyrja... :D og ég las mínar 5-6 setningar síðan spurði hún mig spurningu og ég svaraði bara "sí" og fór svo að segja svarið sem ég var búin að undirbúa...reyndi bara að tengja það í hitt svarið:-P og svo spurði hún aðra spurningu og ég svaraði bara "sí" og fór svo að segja hitt svarið sem ég var búin að undirbúa og reyndi að tengja það í hitt svarið :-P síðan fór allt til fjandans! :-S hún spurði eitthvað og ég gat engan veginn skilið hvað hún var að segja! þannig eftir næstum 5 mínutur af ummm-um og err-um sagði hún bara "nei...segjum bara að þetta sé komið" Arrrgh!!!! en maður verður bara að vona það besta...síðan er skriflega prófið á fimmtudaginn og ég er ennþá verri undirbúin fyrir það!!!! :-S ég er auli.

Gullkorn vikunar!
Ég og Unnur fórum niður í bæ og vorum að skoða í búðirnar....mjög gaman ég með stóru gleraugun mín og öll í sumar fötum! :D síðan fórum við inn í Spútnik/Frúin í Hamborg...mjög gaman...sáum flottan kjóll fyrir utan og vorum mjög spenntar að fara inn...við vorum rétt komnar inn þegar við(Unnur) sjáum GEGGJAÐA skó...vá hvað mig langar í þá...Unnur mátar þau en er ekki að ná fótnum í og réttir mér hann...þegar ég er að fara að reyna að troða fótnum ofan í þessa yndislega skó sem eru greinilega of litlir á mig segir Unnur; "þeir eru svo þröngir, þú verður að setja tærnar í fyrst"...ég fatta ekkert áthugunarvert við þetta alveg strax þangað til ég var búin að gleypa því sem hún sagði...þá segji ég við hana "og hvernig klæðir þú þig í skó? hælinn fyrst?!?" hehe þá hafði hún víst verið að meina að maður verður að ýta tánum eins langt í skóna fyrst áður enn maður situr hælinn í...ég skildi samt hvað hún var að meina...þess vegna var ég svona lengi að fatta :-P hehe

en ég ætla núna að fara upp í súper að kaupa mér að borða...maður verður svo svangur að skrifa svona löng blogg!!! ;-)

Elska ykkur!
Salka xxx

Saturday, April 29, 2006

Ekki hlusta á Sunnu...hún lýgur!!! ég fór út með Kristjanu og Sunnu og Auður áttu að blogga eitthvað fallegt fyrir mig og þetta er hvað þær skrifa! pifff!

nenni ekki að skrifa meir....
Að vera eða ekki vera,það er spurningin...
Er ég samkynhneigð, eða var gærkveldið bara one night stand???
Ég bara veit ekki hvort að hún vilji eitthvað meira,kannski að ég ætti að fara að segja mömmu frá þessu, vil ekki að hún lesi þetta á blogginu.
Í kvöld ætla ég að komast til botns í þessu máli, svo stelpur be aware, því Salka is back in town!

Sunday, April 23, 2006

Ég sagðist ætla að segja ykkur frá páskunum mínum, svo ég ætla að koma með nokkra aðal punkta hérna en annar er mjög góð fyrirsögn á Stelpurnar ...

  • Byrjaði fríið í RVK í "menningarferð" með skólanum...upplifði ekki mikla menningu! :-P fórum reyndar á Forðist Okkur eftir Hugleik Dagsson, þetta var tær snilld!
  • Fór síðan til Ísafjarðar og byrjaði ferðinna á þriðjudaginn með frænku kvöldi...svona mæðga kvöld...Birna og Kristín, Hjördís og Amma, Gerður og Katrín, Sigga og ég...hehe :-P Sigga ákvað að taka við hlutverkið hennar mömmu...horfðum á Pride and Prejudice...mjög gaman...
  • á Miðvikudaginn héldu Helga Lind og Bryndís upp á afmælin sín með "smá" partí heima hjá Bryndísi :D Skemmti mér alveg konunglega!
  • á Fimmtudaginn var minningarkörfuboltaleikur Þóreyjar...Bryndís og Helga Lind eyddu allan leikinn í að gera grín af mér því ég vissi ekki hvað allt þyddi meðal annars gulu punktarnir á stiga töflunni þyddu! og síðan um kvöldið var smá teiti heima hjá Bjarna allt körfubolta liðið var þar og fullt af öðru fólki sem ég þekkti ekkert :-P
  • á Föstudags kvöldi var haldið lítið partí heima hjá Edithar þangað til konan með baugana og setti enda á skemmtunina og ég var sett í það starf að ferja öllum á ball í Hnífsdal með Í Svörtum Fötum....
  • á Laugardeginum var rokkhátíðin Aldrei Fór Ég Suður...mætti klukkan 3 um daginn og fór ekki fyrr en hálf eitt, tvö leitið um morguninn...var að hjálpa Ásthildi að selja boli...það var bara mjög fínt, heyrðum í öllum hljómsveitunum og hittum fullt af fólki...meira að segja nokkra breta :D Prumpison var " the highlight of the night" fyrir mig! :D
  • slappaði bara af á Sunnudaginn og svo fór ættin í mat til ömmu og afa...eftir matinn fór Friðrik að vera illt í magan og það var haldið að þetta gæti verið botnlanginn, þ.a. það var farið með hann upp á spítala og þá þurfti að taka botnlangan!
  • á mánudeginum var bara slappað af, heimsótt Friðrik og fór aðeins út með Ásthildi og Salome...endaði ekki vel:-P var ekkert fólk sem við þekktum á Langa Manga og tímdum ekki að borga okkur inn á ballið ef engin var þar þ.a. við fórum heim til Ásthildar og vorum næstum allar sofnaðar...:-P
  • á þriðjudeginum passaði ég Friðrik og Davíð en þá komu bestu vinirnir mínir, Pétur og Guðmundur, í heimsókn:-P maður fékk ekki mikin frið þá! síðan um kvöldið hittumst við allar (mínus Helgu Lind, Albertu og Sigrún(en hún kom seinna) og borðuðum pizzu og spjölluðum...eftir það fór ég heim til Siggu og pakkaði á met tíma og fór síðan á rúntinn með Helgu Lind fór heim að sofa og vaknaði næsta dag klukkan átta tils að keyra norður!

og þetta voru páskarnir mínir! :D

Heyrumst!

Wednesday, April 19, 2006

jæja þá ætla ég að reyna að vera með mitt eigið íslenskt blogg...þetta enska dó eiginlega út....bretar eyða ekki eins mikinn tíma á tölvum og íslendingar gera þ.a. það var eiginlega bara íslendingar sem voru að skoða þetta svo af hverju ekki vera bara með íslenskt?!? en nú verðið þið að vera dugleg að commenta og kvitta í gesta bókina!!!!

en nú er páskafríið að enda...eða það endaði í gær en ég var bara að koma norður í dag þ.a. páskafríið mitt endar ekki fyrr en á föstudaginn...:D já...í dag vaknaði ég klukkan 8...ÁTTA!!! og fór síðan heim til Siggu klukkan 9:20 og klukkutíma seinna lögðum við af stað til Akureyrar...nema það þegar við vorum komin á endan af götunni var snúið við því þá hafði gleymst að fá eitthvað lánað hjá Gunnlaugi svo við gætum hlust á iPodinn okkar Birnu í útvarpinu á leiðinni...síðan lögðum við aftur af stað...þá vorum við kominn fram hjá flugvellinum þegar Sigga fattaði allt í einu að hún hafði gæeymst símanum sínum og veskinu sínu...þ.a. við snúðum við og fórum aftur heim...þá þegar við vorum kominn með veskið og síman lögðum við af stað eina ferðina en...og það var bara third time lucky því í þetta sinn náðum við að komast alla leið norður!!!! :D en þarf að fara að borða svo ég segji ykkur bara frá páskafríinu seinn! :D

bæjó! :D
Salka
xxx