Kristjana farin :(, snjórinn og prófin komin í staðinn....
jæja þá er hún elsku Kristjana mín flutt suður fyrir sumarið...vá hvað maður á eftir að sakna hennar! en ég ætla mér að hitta hana á leiðinni minni heim..ætlum að hittast og djamma :D eða bara hittast og versla skó! :D en hún fór fljúgandi héðan í gær og var að fara með fluginu kl 12:10 og síðan að við (ég og Sunna) förum í mat klukkan 12:10 ákvöðum við að fara úr tímanum smá snemma fara út á flugvell og surprise-a hana Kristjönu...við flýtum okkur út á flugvell hlaupum inn...en við finnum hana hvergi...síðan skemmum við surprise-ið og hringjum í hana til þess að sjá hvar hún er en þá kemur í ljós að kjánaprikið var sofandi! við vöktum hana kl 12 og flugið hennar fór eftir tíu mínutur...en hún missti af fluginu og við pöntuðum handa henni far með næsta flugi sem fór reyndar ekki fyrr en kl 15:10 en það er betra en ekki neitt:-P en hún komst þó loksins til RVK og það er bara allt í fínasta lagi! :D
það byrjaði að snjóa svona "on and off" um helgina...aldrei neitt sem festist en það snjóaði samt en í gær nótt (sunnudags nótt) byrjaði snjórinn að festast og það snjóaði í alla nótt og er ENN að snjóa! það er allt á kafi í snjó! ég vill ekki snjó! ég vill sól! og það var komið svo gott vepur...er bara búin að vera að ganga í sumar fötum síðan eftir páskana og núna kemur snjór!!!! grrr!!! ég er mjög bitur! og "to top it all off" þá byrja prófin á föstudaginn...:-S wish me luck! I'm definatly going to need it!
en annars segji ég bara allt gott...er búin að vera að sýna og seinasta sýningin var á sunnudaginn og það kom gagngrýnandi og alles! (það er ástæðan fyrir því ég hef bloggað svona lítið) og svo er síðasti kennslu dagur á morgun en við fáum frí í einu tímanum sem við eigum að fara í þ.a. þetta er bara síðasti kennslu dagurinn minn! :D
bæjó!
Salka
Tuesday, May 23, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

2 comments:
Búin að gera þér grein fyrir að þetta var síðasti dagurin okkar sem bekkur í dag:(?
...en þetta með snjóinn, það er allavega kostur að hafa ekki gott veður þegar við þurfum að læra;)
verðum við ekki bekkur á næsta ári? :-S já reyndar það er satt hjá þér með snjóinn...
Post a Comment