Saturday, May 13, 2006

Gær kvöldið....var geðveikt gaman!!! :D

Planið var að fara í kjarna (það er skógur hér á Ak) á félagsfræðiárshátíðina en við (ég, Unnur, Erna og Sunna) fréttum að það væri engin þar þ.a. við fórum og kíktum og það voru bara nokkrir 10. bekkingar og bróðir hennar Sunnu! :-P svo við hættum við...fórum heim til mín og skiptum um föt og gerðum okkur til...síðan komu Sigrún, Heiða og Katrín og þær kláruðu að gera sig fínar og borðuðu sítrónur í sykri ;-P síðan lögðum við af stað niður í bæ :D fórum fyrst á Oddvitann en það var ekkert stuð þar þ.a. við fórum á Kaffi Ak þar var FULLT af fólki og dönsuðum og skemmtum okkur mikið...en þá byrjuðu creepy gömlu karlarnir að creepa okkur út! þ.a. við fórum á Dátann, en þá voru Sunna og Unnur búin að skipa okkur að koma þangað... :-P þar var líka gaman hittum fullt af fólki, Boggu, Kötlu og Nínu....síðan fór DJ í taugarnar á okkur þannig að við fórum aftur á Kaffi Ak! :D þar hittum við Sindra gamla böðulinn okkar! :D við tókum fullt af myndum og ætla ég að setja þær á netið núna á eftir! :D

eftir að það var búið að loka fórum við Erna, Sunna og Kristjana á Nætursöluna og ætluðum að fá okkur franskar...Kristjana var svo góð að hún pantaði og borgaði franskar fyrir okkur allar, síðan byrjaði biðin, hún beið og beið og beið, á meðan sátum við út í glugga að borða franskarnar!!! :-P síðan fór hún að tala við einhvað fólk síðan fór hún aftur að afgreiðslu borðinu og beið meir...á meðan héldum við áfram að éta!!! :D þá föttuðum við Erna og Sunna að við værum að éta franskarnar sem Kristjana var að bíða eftir...þ.a. Sunnu kallaði á Kristjönu "hvað ertu að bíða eftir?", "frönskunum sem ég keypti handa okkur öllum!", "Kristjana komdu aðeins...(Kristjana kom, við réttum henni pokana) þú mátt eiga restina..." hehehehehe :Þ okkur fannst þetta allavega mjög fyndið! :Þ

Erna, Sunna og ég í nætursölunni, ég og Erna að gera okkar best að eyðileggja myndina!!!!
Erna svöl að borða franskana! :D


núna ætla ég að fara....takk allir fyrir gærkvöldið og við sjáumst seinna!!! :D
Salka

3 comments:

Anonymous said...

Hahahah já það var gaman!! :D:D Annars.. takk fyrir gærkveldið, nóttina og daginn í dag! :)

Anonymous said...

Það var mjög gaman í gær. Fáum við ekki að sjá myndir:)?

pureblonde said...

Jú Heiða ég er búin að setja myndirnar á myndasíðuna mína! það er linkur hérna til hliðar! <<- :D