Í gær var ég farin að halda að ég væri orðin fastagestur á slysadeildinni upp á spítalanum hérna á Akureyri....á miðvikudaginn kom Orri heim af fótbolta æfingu og hann tilkynnti að ég þyrfti að fara með hann upp á slysó því hann meiddi sig í fótnum...og ég alltaf jafn góð við bróðir minn hlustaði ekkert á þetta hjá honum og sagði honum að leggjast í sófan setja eitthvað frosið á það...fór út í Brynju og keypti ís handa mér og krökkunum en þegar ég kom heim þá var Orri að kvarta að honum var enn þá rosalega illt, þ.a. þegar við vorum búin með ísana okkar þá fór ég með hann upp á slysó. þar var mikið vesen því hann er ekki búin að vera á Íslandi í 6 mánuði þ.a. hann er ekki komin inn í kerfið og erþá ekki með tryggingu eða eitthvað og er talin sem útlendingur og þurftum við þá að hringja í mömmu og pabba og láta faxa E111 kortið hans og koma með vegabréf en af því að það var um miðnættis og hjúkkan vildi leyfa okkur inn þá sagði hún að við mættum redda þessu öllu daginn eftir...við hittum læknirinn og hún leit út fyrir að vera 12 ára eða yngri! svo sagði hún ekki mikið fyrir utan "ég held þetta er ekki brotið en þú mátt koma aftur á morgun ef þér er mjög illt..." og þá fórum við heim...síðan fórum við aftur á slysó daginn eftir svo hann gæti farið í myndatöku og þá kom í ljós að hann var ekki brotin en hann var búin að togna í öklanum og fékk ækjur og tegjusokk...síðan á föstudaginn lenti vinur Óðins í einhverjum slagsmálium og var skallaður og nefbrotin og hann vildi fara og check-a á hann þ.a. við fórum upp á slysó (ég var driver) og þar var bróðir stráksins sem var nef brotin og einhverjir aðrir vinir hans allt í lagi með það og strákurinn kom fram allur út í blóði og með sauma á nefinu og settist hliðin á mér...ég leit á hann og hugsaði bara ugh...þetta var ekki fallegasta sjón sem ég hef séð...en þá var ég búin að fara upp á slysó þrjá daga í röð og ég bara beið eftir því að eitthvað myndi gerast í gær sem myndi þýða að ég þyrfti fara upp á slysó aftur... ég er eiginlega bara glöð að ég hitti ekki alltaf sömu hjúkkuna...hún myndi örugglega fara að halda að ég væri að slasa fólk viljandi bara svo ég gæti ffarið upp á slysó og sitja og bíða eftir að fá að hitta einhver....því það er svo gaman! :P var líka að fatta að fyrir svona máuð síðan (eða lengra) þá var Unnur upp á spítala og ég var þar á hverjum degi í viku eða svo...á ég ætti bara fá mitt eigið herbergi þarna!
svo í gær var farið á 1929/capone það var einhverjir fimm DJ-ar sem komu og svo voru þeir líka með einhver skemmti atriði...þeir krosfestu einhver gaur!!!! :O veit ekki alveg hver þetta var og ég horfði ekki á en þetta var allt tekið upp þ.a. þið getið örugglega fengið að sjá þetta einhversstaðar einhvern tíman...en þetta var samt geðveikt kvöld...hitti allar stelpurnar og dansaði af mér fæturnar! og ég læri af mistökum mínum fór í Dr. Mister & Mr Handsome bolnum en ég fór í hlýrabol undir og gallapilsið mitt! :D var mjög stolt af sjálfum mér fyrir að flasha ekki nein og allt það :Þ en núna sit ég í sófanum að horfa á 3 men and a little lady og nenni ekki að hreyfa mig en samt finn ég að það er geðveik djamm lykt af mér og að ég þarf að fara í sturtu, ég bara nenni ekki að hreyfa mig...ég er ein mesti "sófa kartafla" sem ég veit um...hehe :Þ
en ég ætla að reyna að mana sjálfa mig upp í að fara í sturtu...bæjó!
Sunday, November 19, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

5 comments:
Æjj dúlla :) Gaman að hitta þig í gær á 1929 þó það hafi ekki verið mikið:O Ég heyri í þér á eftir, langar þig ekki annars að taka sma rúnt í kveld eins og næstum alla sunnudaga haha .. alllavega elska þig sæta, heyrumst;*
heyrðu já ég er til! alltaf gaman að slúðra smá um helgina :D hringi í þig! :D elska þig :-* xxx
ótrúlega gaman að hitta þig í gær;) verð nú að farað kíkja í heimsókn...er sko ekki að "avoida" þig...hehe
Já salka, ég tók eftir því að þú varst í bol innan undir kjólnum þínum fræga á laugardagskvöldið:) En stuð á 1929, en mér fannst þetta krossfestingardæmi svoooolítið geggjað sko...
Það er afrek að fara á slysó þrjá daga í röð...!
gott að vita að þú er ekki að avoida mig! :D já viltu gjöruð svo vel að koma í heimsókn!!!
já védís mér fannst þetta líka vera soldið flott hjá mér :Þ
Post a Comment