Monday, May 07, 2007

Stundum er ég hrædd um að vinir mínir finnst ég ekki skemmtileg. Ég veit að margir sem þekkja mig ekki halda að ég er rosalega pirrandi og leiðinleg og kannski hafa þau rétt fyrir sér. Kannksi eru vinir mínir eina fólkið sem hefur þolinmæðina tils að vera með mér. Kannski eru þau bara að nota mig tils að fá far út um allt. Og svo er ég kannski bara rosalega paranoid og vinir mínir halda að ég sé æðislega skemmtileg, finnst ég vera frábær. Alla vegna vona ég það. En stundum er ég hrædd um að vinir mínir þola mig bara vegna þess að þau eru og góð tils að hunsa mig. Kannski er ég bara að rugla en þetta veldur mér miklar áhyggjur stundum.

Mér finnst fólk vera svo fjarlægt. Kannski er þetta stress fyrir prófin. Eða peningaleysa tengd vandamál. Eða eitthvað annað, ég veit það ekki en oft finnst mér fólkið í kringum mig vera svo fjarlægt og vill ekki tala við mig, eða hafa mig nálægt. Stundum veit ég ekki hvað ég á að gera eftir skóla. Mér leiðist alltaf heima hjá mét því ég hef ekkert að gera, en fólkið í kringum mig er svo fjarlægt, eins og það nennir ekki að tala við mig hvað þá hanga með mér, að ég þori ekki að spyrja hvort þau vilja gera eitthvað. Á svona dögum fer ég bara heim að láta mig leiðast og vona að þetta verður skárra á morgun. Stundum sit ég hliðin á einhverjum í tíma. Samt finnst mér eins og hún sér mig ekki, eins og ég sé ekki þar. Við erum ekki tengd. Ég er ekki að segja að við þurfum stanslaust að vera að tala eða eitthvað. En stundum finnst mér eins og henni er alveg sama um mig og acknowledge-ar (viðurkennir) ekki að ég er þarna. Hunsar mig hálfgert.

Það er líka svo mikið að gera í skólanum, fullt af prófum sem ég hef ekki tíma tils að læra fyrir. Verkefni sem ég hef ekki tíma tils að gera. Svo er það líka peningaleysan. Hvert fór allur peningurinn minn? Ég fékk bara mjög vel útborgað í sumar, svo var ég að vinna í brogarbíó og fékk vel borgað þar og svo bara ein og hálfri mánuði eftir að ég hætti þar er ég búin með allan peninginn minn. Ég þurfti að fá lánað pening tils að geta borgað staðfestingargjaldið og veit ekki hvernig ég á að borga það til baka. Getur lífið ekki verið auðveldara? Einfaldara?

Svo er eitt sem hjálpar engu. Poopoo hausar. Ekki það að ég er eitthvað að deyja úr ástarsorgi. Hef aldrei verið ástfangin þannig að ég get það ekki. En það liggur við að allar vinkonur mínar eru í einhverj veseni með stráka. Stráka sem hafa verið að fara eitthvað illa þeð þær. Hössla þær og aðra gellu á sama tíma. Hössla þær, láta þær fatta hvað þeir eru sætir, yndir, skemmtilegir, snúa síðan við og hætta algjörlega að hafa samband við þær. Af hverju gera þeir þetta? Ef þeir hafa engan áhuga af hverju segja þeir manni ekki? Ef þú ert strákur og er að lesa þetta og hefur gert eitthvað svona þá ættiru bara a skammast þín. Við stelpur eru viðkvæmar og þola ekki að láta fólk rugla í tilfinningum okkar! Er það eitthvað gen í strákum sem kemur í veg fyrir því að þeir geta sagt sannleikan?

Skilur einhver hvað ég er að segja? Er ég að make-a sense? Er ég kannski bara að bulla?

6 comments:

Anonymous said...

Æjj Salka mín!!! Þú ert ALLS EKKI leiðinleg!! Þú ert yndisleg, frábær, skemmtileg og sæt!! En ég skil þig samt vel.. líður stundum líka svona! eeen þú ert samt frábær, og þú átt að vita það;*

En í sambandi við strákana þá já, er ég alveg sammála þér!! Flestir þeirra eru poopoo hausar, það væri gott ef þeir væri merktir á enninu eða e-ð svo maður gæti nú forðast þá;)

Þetta er kannski orðið alltof langt komment hjá mér en ég vil samt að þú vitir að þú ert æðisleg! Og ekki láta neinn segja þér annað eða láta þig halda annað!!

Love you! <3 ;*

Anonymous said...

Úff. Ég var að bíða eftir djók partinum, en Salka, af hverju helduru það? Þú ert sem ert alltaf svo hress og sítalandi, kannski eru bara heilarnir hjá öðru fólki að processa á meðan upplýsingarnar síast inn;)hehe, en þú ert yndi salka ekki trúa neinu öðru. það verður gaman að djamma með þér á rhodos,crazy blonde;)

Lífið er bara stundum erfiðara en maður vill hafa það. It sucks, en það verður betra bráðum, sumar sól og útskriftarferð okei?!?!

Anonymous said...

Knúsi ;*
Eins og Erna sagði þá finnst mér þetta stundum líka.. en er það ekki bara útaf því maður er eitthvað neikvæður og finnst eins og ekkert sé að ganga upp.. ? Mér þikir allavega rosa vænt um þig og finnst þú algjör æðibiti krúsí. Biddu mig bara um að knúsa þig þegar þú ert eitthvað down og ég skal lofa þér því að þér á allavega eftir að líða smáááá betur! :p En gott að þú skrifar um þetta og kemur þessu frá þér, ég er hérna ef þig langar að tala við einhvern ..

Anonymous said...

Æji dúllan mín, ég vona að þú trúir því ekki í alveöru að einhverjum finnist þú leiðinleg. Mér finnst þú allavega æðibiti. Þú ert svo hress og skemmtileg, sæt og góð og alveg ótrúlega góð vinkona! Ég gæti alveg trúað því að ég væri ein sf þeim sem sitja við hliðina á þér og það er einsog ég sé að hunsa þig en það er bara því ég er sjálf svo dofin í hausnum þessa dagana. En elsku dúllan mín þegar þér líður svona þá máttu endilega hringja ímig, ég er yfirleitt í sama pakkanum, heima að láta mér leiðast. og mér líður oft svona einsog öllum finnist ég leiðinleg og pirrandi og nenni ekki að vera með mér. vona að það sé ekki satt en það er allavega bókað að mér finnst þú æði...mússímú:*

Anonymous said...

Sæta, sæta, sæta Sals!

Ég elska þig svo ótrúlega mikið og ég vildi að ég gæti verið hjá þér og knúsað þig núna!:* Eeen það eru ekki nema 3 dagar í að ég geti knúsað þig fast. Get ekki beðið.

Þú ert klárlega ein frábærasta manneskja sem ég þekki. Loveyoulongtime:*:*

ps. remember "dingdong the witch is dead, the witch is dead"

Anonymous said...

okkur líður öllum svona from time 2 time, efumst um okkur sjálf og aðra, vona að það gangi yfir hjá þér fljótlega! ég er alltaf laus, alltaf ein heima, fólk hefur sjaldan tíma til að vera með mér, en kanski finnst mér það bara af því ég hef meiri tíma heldur en aðrir,
þú mátt alltaf leika við mig þegar þér líður illa! þér líður líka sjálfkrafa betur í kringum örkumla feitabollu! ;)