jæja, þá er ég komin aftur frá Newquay, reyndar er vika síðan en... og það var geggjað gaman, ég skemmti mér alveg ótrúlega mikið og kom heim 2 kjólum, bol, 2marblettuðum leggum, húla pils og skelja bikini topp ríkari en ég var líka fátækari, þannig það jafnast út held ég ;P ég á eftir að setja myndirnar á netið en þið getið séð smá preveiw á
myspace síðunni minni:) ég veit ekki hvað ég get sagt ykkur, það gerðist svo mikið! við hittum fullt af skemmtilegu fólki og eignuðust fullt af nýjum vinum sem við eigum örugglega aldrei eftir að sjá aftur :P nú er planið fyrir næsta ár að fara þangað í júní og búa þar og vinna allt sumarið :D að sjálfsögðu er ég geðveikt spennt!!! get ekki beðið, svo gerum við þetta kannski ekki en ég vona það, er einhverjir sem vilja koma og heimsækja mig? það væri geggjað! vá hvað ég er að plana langt fram í tíman, þetta er mjöög ólíkt mér! en annars ætla ég að fara að vinna smá, vildi bara láta ykkur vita að ég væri á lífi...





.JPG)
eins og þið sjáið á þessum myndum (klikkið á þau tils að sjá skýrara) þá var Laura með stærsta bros af okkur öllum, Mario var uppáhalds dyravörður okkar(þótt hann heitir í alvöru Alex), Leanne og Laura fóru í hraðbát, allir voru ástfangnir af mér, fengu sér tattoo og alles(veit ekki hvernig hann ætlar að útskýra þetta fyrir kærustuna sína! :O) ég hitti Harry Potter og hann gaf mér há hest og ég var með yfirvara skegg og hún Laura var svo hrein hún fékk certificate!
sjáumst bráðum kát og sæl á íslandi :D
xxx
4 comments:
ég kem í heimsókn ef ég verð ekki sjálf eikkustaðar í útlandinu. ætlaði að farað segja að mig langar ekkert smá í svona fylleríis ferð en svo fattaði ég að það er bara 2 vikur þangað til við förum í svoleiðisa;) jei, vá hvað ég hlakka mikið til, miss you like crasy:*
Já ég kem líka í heimsókn ;D hlakka til að sjá þig sæta! ;* er búin að sakna þín aðeins of mikið í sumar !
æj það verður svo gott að hitta þig aftur! .. bara nokkrir dagar í það :) skemmtilegar myndir sæta og hafðu það gott þar til ég sé þig næst :D
Halló :D Gaman að lesa bloggið þitt nú förum við alveg að hittast aftur og það verður ekki leiðinlegt sölkurinn minn, gaman af þessu myndum :Þ
Ást Bryndís
Post a Comment